Kynningarfundur á Akureyri

Kynningarfundur á Akureyri 2018
Kynningarfundur á Akureyri 2018

Tourette-samtökin, Sjónarhóll, ADHD samtökin og Einhverfusamtökin verða með sameiginlegan kynningarfund í Brekkuskóla við Laugargötu á Akureyri fimmtudaginn 12. apríl kl. 20. Á fundinum munu samtökin kynna starfsemi sína en einnig verður kynning á starfsemi réttindagæslumanns fatlaðs fólks á Norðurlandi og Elís Freysson verður með erindi sem nefnist "Með augum einhverfunnar".
Allir velkomnir - Heitt á könnunni

Dagskrá fundarins er þessi:

  1. Sjónarhóll ráðgjafamiðstöð Sigurrós Á Gunnarsdóttir framkvæmdastjóri
  2. Einhverfusamtökin Sigrún Birgisdóttir framkvæmdastjóri
  3. „Með augum einhverfunnar“ Elí Freysson
  4. KAFFIHLÉ
  5. Réttindagæsla fatlaðs fólks á Norðurlandi Guðrún Pálmadóttir, réttindagæslumaður
  6. ADHD samtökin Elín H. Hinrikdóttir formaður
  7. Tourette samtökin Arnþrúður Karlsdóttir formaður

Gert er ráð fyrir að dagskrá ljúki um kl. 22:30