Aðalfundur 7. september kl. 19:30

Aðalfundur Tourette-samtakanna á Íslandi verður haldinn mánudaginn 7. september kl. 19:30 að Hátúni 10 jarðhæð, í sal beint á móti skrifstofu samtakanna.

Farið verður að tilmælum um sóttvarnir eins og tilgreint er á www.covid.is
Dagskrá aðalfundar er:
  • Setning
  • Skýrsla stjórnar
  • Reikningar lagðir fram til samþykktar 
  • Lagabreytingar
  • Félagsgjald komandi almanaksárs ákveðið
  • Kosning formanns
  • Kosning stjórnar
  • Kosning skoðunarmanns og annars til vara
  • Önnur mál
Að loknum aðalfundi kemur Jónas Sigurðsson tónlistarmaður til okkar og deilir með okkur hugleiðingum sínum, en hann hefur vakið athygli fyrir að tala opinskátt um glímuna við Tourette, ADHD og kvíða. 
 
Í ljósi aðstæðna vegna COVID-19 hefur verið tekin ákvörðun um að streyma frá aðalfundinum og erindi Jónasar Sigurssonar. Félagsmönnum sem sem vilja fylgast með streyminu en eru ekki á póstlista samtakanna er bent á að senda póst á tourette@tourette.is með kennitölu þess sem skráður er í samtökin til að fá sendan tengill inn á streymið sem hefst kl. 19:30.

Hlökkum til að sjá ykkur

Stjórn Tourette-samtakanna á Íslandi