Aðalfundur haldinn 14. apríl

Mynd/ÖBÍ
Mynd/ÖBÍ

Aðalfundur Tourette-samtakanna á Íslandi verður haldinn þriðjudaginn 14. apríl klukkan 20:00 að Sigtúni 42 í Reykjavík, húsnæði ÖBÍ réttindasamtaka þar sem Tourette-samtökin eru með skrifstofu. Fundurinn verður haldinn í Oddsstofu á 1. hæð. 

Dagskrá aðalfundar er:

  • Setning

  • Skýrsla stjórnar

  • Reikningar lagðir fram til samþykktar

  • Lagabreytingar

    • Tillögur að lagabreytingum þurfa að berast stjórn minnst þremur vikum fyrir aðalfund

  • Félagsgjald komandi almanaksárs ákveðið

  • Kosning stjórnar

  • Kosning skoðunarmanns og annars til vara

  • Önnur mál

Hægt er að gefa kost á sér í stjórn á fundinum.

Boðið verður upp á léttar veitingar.

Netfang samtakanna er tourette@tourette.is og síminn er 840-2210