Hugmyndafundur ungs fólks, okkar líf - okkar sýn

Hugmyndafundur ungs fólks fer fram á Grand Hotel laugardaginn 5. nóvember nk. frá kl. 12:00 til 15:00.

Fyrir hverja?

Fötluð börn, þ.m.t. börn með ADHD, einhverfu, Tourette, gigt og sykursýki svo dæmi séu tekin, systkini þeirra og börn sem eiga fatlaða foreldra. Aldur þátttakenda 13-18 ár.

Umræðuefni fundarins verður:

Hvað er gott og hverju vilt þú breyta í sambandi við skólakerfið, tómstundir, íþróttir, aðgengi, námsefni, viðhorf o.s.frv.

Markmiðið er að hlusta á krakkana, hugmyndir þeirra og skoðanir og aðstoða þau við að koma ábendingum á framfæri.

Boðið verður upp á hádegisverð og Emmsje Gauti verður með tónlistaratriði

Málefnahópur ÖBÍ um málefni barna stendur fyrir fundinum. Það er frítt á viðburðinn og komið verður til móts við ferðakostnað ungmenna af landsbyggðinni. Skráning er hjá Andreu Valgeirsdóttur, starfsmanni málefnahóps ÖBÍ um málefni barna í netfanginu andrea@obi.is