Kvikmyndin I Swear hefur vakið mikla athygli en hún er byggð á sannri sögu John Davidsson sem varð þekktur fyrir baráttu sína fyrir því að auka vitund almenning um Tourette heilkennið.
Við hjá Tourette samtökunum segjum hér frá þessari kvikmynd þar sem hún er nú sýnd í íslenskum kvikmyndahúsum og mælum mikið með henni
Í stuttu máli fjallar myndin um John Davidson sem greindist með Tourette-heilkennið 15 ára gamall, og segir frá því hvernig hann brýst í gegnum erfið unglingsár og inn á fullorðinsárin, þar sem hann finnur innblástur í góðvild annarra og uppgötvar sinn sanna tilgang í lífinu.
Á vefnum Kvikmyndir.is er fjallað um myndina I Swear og þar kemur meðal annars fram að myndin dragi skýrt fram að stærstu hindranirnar eru ekki einkennin sjálf heldur skilningsleysi og fordómar.
Þar segir einnig: „I Swear er einföld en áhrifarík mynd sem segir mannlega sögu á heiðarlegan og aðgengilegan hátt. Hún er bæði fyndin og alvarleg án þess að missa fókus og situr í manni eftir á og minnir á hversu miklu máli skilningur og samkennd skipta.“