Spjallfundur 30. september kl. 20:00

Tourette-samtökin á Íslandi verða með spjallfund mánudaginn 30. september kl. 20:00. Yfirskrift fundarins er Tourette og grunnskólinn.

Á spjallfundi getum við rætt um hvað eina sem okkur liggur á hjarta og viðkemur Tourette. Það er hægt að fá upplýsingar um Tourette hjá fagfólki og lesa sér til á netinu. En sumar upplýsingar er ekki hægt að fá nema tala við einhvern sem hefur reynt á eigin skinni og skilur, af því hann hefur gengið í gegnum það sama og maður stendur frammi fyrir sjálfur.

Heitt á könnunni og aðgangur ókeypis.

Spjallfundurinn verður í sófahorninu í Setrinu á 1. hæð í Hátúni 10, við hliðina á skrifstofu samtakanna.