Skráning er hafin á vorráðstefnu Ráðgjafar- og greiningarstöðvar, sem í ár er haldin í samstarfi við Gló Æfingastöð, og haldin verður 7.–8. maí á Hilton Reykjavík Nordica og í streymi.
Yfirskrift ráðstefnunnar í ár er Sköpum tækifæri – þátttaka og framtíð fatlaðra barna.
Markmið ráðstefnunnar er að efla þekkingu og umræðu um þátttöku fatlaðra barna og stuðla að þróun starfshátta og hagnýtra lausna sem styðja við raunveruleg tækifæri til þátttöku fyrir öll börn hvort sem það er í skólaumhverfinu, tómstundaúrræðum eða daglegum viðfangsefnum barna og fjölskyldna þeirra.
Ráðstefnan leiðir saman fagfólk, foreldra, rannsakendur og aðra sem láta sig velferð barna varða og skapar vettvang fyrir miðlun þekkingar, samtal og þróun framtíðarsýnar um þjónustu við fötluð börn.
Aðalfyrirlesarar ráðstefnunnar eru:
Snæfríður Þóra Egilsson, prófessor í fötlunarfræði við Háskóla Íslands
Rachel Teplicky, Business and Engagement Officer, Occupational Therapist at CanChild Centre for Childhood-Onset Disability Research, McMaster University
Peter Rosenbaum, Professor of Paediatrics, McMaster University, Co-Founder, CanChild Centre for Childhood-Onset Disability Research
Snæfríður Þóra fjallar um þátttöku fatlaðra barna og ungmenna, hvað felst í þátttökuhugtakinu og hvernig samspil barns og umhverfis mótar möguleika til þátttöku. Hún dregur fram niðurstöður íslenskra og alþjóðlegra rannsókna og beinir sjónum að því sem ungt fatlað fólk telur sjálft skipta mestu máli fyrir góða framtíð.
Rachel Teplicky fjallar um hagnýta innleiðingu F-orðanna (Færni – Fjölskylda – Form – Félagar -Fjör – Framtíð) og hvernig þau geta umbreytt þjónustu með því að færa áherslu frá takmörkunum yfir í styrkleika, færni og þátttöku barna. Peter Rosenbaum tekur þátt í erindi Rachel í gegnum netið og setur umræðuna í alþjóðlegt samhengi.