Spjallfundur fimmtudaginn 5. mars kl. 20

Tourette-samtökin á Íslandi verða með spjallfund fimmtudaginn 5. mars kl. 20:00. 

Yfirskrift spjallfundarins er: Kippir í kynið - Tourette og arfgengni. Umsjónarmenn eru Arnþrúður Harpa og Elva Dögg.

Á spjallfundi getum við rætt um hvað eina sem okkur liggur á hjarta og viðkemur Tourette. Það er hægt að fá upplýsingar um Tourette hjá fagfólki og lesa sér til á netinu. En sumar upplýsingar er ekki hægt að fá nema tala við einhvern sem hefur reynt á eigin skinni og skilur, af því hann hefur gengið í gegnum það sama og maður stendur frammi fyrir sjálfur.

Heitt á könnunni og aðgangur ókeypis. Hlökkum til að sjá sem flesta.

Spjallfundurinn verður í sófahorninu í Setrinu á 1. hæð í Hátúni 10, við hliðina á skrifstofu samtakanna.