Verum sýnileg - Tökum pláss

 Mætum öll. Tökum makann, börnin, ættingja og vini með okkur. Við erum í harðri baráttu fyrir betri kjörum. Sýnum það í verki! 
Safnast verður saman hjá Hlemmi - þar sem nú er mathöll - klukkan 13. ÖBÍ útbýtir kröfuspjöldum og regnslám og peppar okkur saman áður en gangan heldur af stað kl. 13:30. 
Útifundur verður á Ingólfstorgi kl. 14:10, en ÖBÍ verður með viðburð á Lækjartorgi þegar gangan fer þar hjá. Þar má enginn láta sig vanta. Við ætlum að sýna hvernig spilað er með fólk! 
Hressing, kakó, kaffi og kleinur í boði. Sjá nánar á https://www.facebook.com/events/778273255710632/