Aðalfundur Tourette-samtakanna á Íslandi verður haldinn þriðjudaginn 14. apríl klukkan 20:00 að Sigtúni 42 í Reykjavík, húsnæði ÖBÍ réttindasamtaka, í Oddsstofu á 1. hæð.
Skráning er hafin á vorráðstefnu Ráðgjafar- og greiningarstöðvar, sem í ár er haldin í samstarfi við Gló Æfingastöð, og haldin verður 7.–8. maí. Yfirskrift ráðstefnunnar í ár er Sköpum tækifæri – þátttaka og framtíð fatlaðra barna.