31.05.2026
Við vekjum athygli á því að skrifstofa Tourette-samtakanna er lokuð í sumar, 1. júní til 31. ágúst. Sjáumst aftur í haust!
20.04.2026
Kvikmyndin I Swear hefur vakið mikla athygli en hún er byggð á sannri sögu John Davidsson sem varð þekktur fyrir baráttu sína fyrir því að auka vitund almenning um Tourette heilkennið.
18.03.2026
Aðalfundur Tourette-samtakanna á Íslandi verður haldinn þriðjudaginn 14. apríl klukkan 20:00 að Sigtúni 42 í Reykjavík, húsnæði ÖBÍ réttindasamtaka, í Oddsstofu á 1. hæð.
11.03.2026
Skráning er hafin á vorráðstefnu Ráðgjafar- og greiningarstöðvar, sem í ár er haldin í samstarfi við Gló Æfingastöð, og haldin verður 7.–8. maí. Yfirskrift ráðstefnunnar í ár er Sköpum tækifæri – þátttaka og framtíð fatlaðra barna.
17.02.2026
Allir foreldrar barna og ungmenna með Tourette eru velkomnir í kaffispjall miðvikudagskvöldið 4. mars klukkan 20 í Sigtúni 42, Mannréttindahúsinu.
12.02.2026
Nú hefur verið opnað fyrir umsóknir um orlofshús Umhyggju í Brekkuskógi og Vaðlaborgum í sumar. Um er að ræða tímabilið 29. maí til 28. ágúst og eru húsin leigð út í viku í senn, frá föstudegi til föstudags. Verð fyrir vikuleigu er kr. 35.000.
10.01.2026
Miðvikudaginn 21. janúar ætlum við hjá Tourette-samtökunum að eiga góða stund saman í trampólíngarðinum Skopp.
30.12.2025
Tourette-samtökin veittu Magnúsi Orra Arnarsyni styrk í dag til áframhaldandi góðra verka í kvikmyndagerð. Hann hefur vakið athygli á undanförnum árum fyrir störf sín og innblástur. Magnús Orri byrjaði að læra kvikmyndagerð í framhaldsskóla en boltinn fór að rúlla af alvöru þegar hann var fenginn til að gera kynningarmyndband fyrir Íþróttasamband fatlaðra.
12.10.2025
Mánudaginn 3. nóvember ætlum við hjá Tourette-samtökunum að eiga góða stund saman í keilu; hittast, spjalla og hafa gaman.
03.10.2025
Bíó Paradís í samstarfi Tourette samtökin kynna sérstaka skynsegin sýningu á SIGUR FYRIR SJÁLFSMYNDINA laugardaginn 11. október kl 15:00. Magnúsi Orri Arnarson, leikstjóri myndarinnar, verður viðstaddur og mun sitja fyrir svörum eftir sýninguna.